Opinn fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrslu umboðsmanns Alþingis mánudaginn 28. febrúar
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund mánudaginn 28. febrúar í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og hefst hann kl. 9:30. Fundarefni er skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2020. Gestur fundarins verður Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis.
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.